12 júlí 2004

Má sko ekkert vera að þessu..



Má sko ekkert vera að þessu núna. Brjálað að gera að hugsa um fjögur börn, þar af tvo ofvirka og eina 8 mánaða og einn 4 ára sem er bara "venjuleg" frekja hehe. Á núna að vera að elda hádeigismatinn en er að stelast til að blogga smá. Það gengur allt bara bærilega, var reyndar í brúðkaupi um helgina og borðaði þar dýrindis steik og grænmeti, en ég sleppti brúðartertunni á eftir. Svo stalst ég í smá súkkulaði í gær, en ekkert svona meidjör sko. Hef ekkert verið að vigta mig enda gefst engin tími til að striplast hér á morgnanna svo þið verðið bara að bíða spenntar eftir nýjum tölum þegar börnin fara en það verður ekki fyrr en eftir verslunarmannahelgi. Jæja allir komnir inn og verð að fara að gefa þeim að borða eitthvað. Skjáumst síðar.