13 desember 2004

Bahh.....

Jæja þetta próf búið! Efnafræði er ekki mitt fag, það er alveg á hreinu. En ég skilaði mínu og nú er bara að vona og biðja um að ég nái, er búin að fá útur fullt af prófum en ekki því sem ég er hræddust um að hafa fallið í !!!! Þetta stress er að fara með mig og nú er ég komin með flensu ofan í allt ARRRRGGG en jæja bara eitt próf eftir og það er á fimtudaginn, og það verður vonandi frekar létt!!

Allt hitt bara gengur svona einhvernvegin.......vona að ég lifi bara þessa helför af ;o) Er reyndar núna bara að vorkenna sjálfri mér (það er svo gott stundum) en lundin er mikið betri núna en síðast og þó svo að ég sé að fá einvhern kverkaskít þá lýt ég heimin bjartari augum nú. Langar bara að þakka ykkur öllum fyrir stuðning, æðislegt að vita að þið yfirgefið mig ekki. Já og Kristrún knús frá mér til þín og vonandi verður endirin hjá þér jafn farsæll og hjá mér ;o).

Jæja ætla að fara að slappa af og kasta próf-mæðunni

4 Tjáðu sig:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Takk elskan, gott að heyra að þér líði örlítið betur. :)
Ég er að fara í seinna prófið mitt í fyrramálið og þvílíkt með í maganum, enda hugurinn búinn að vera útum víðan völl. :s EN... setti mér það markmið að láta þetta ekki angra mig fyrr en í fyrsta lagi eftir hádegi á morgun... ;) fær sko ekki að eyðileggja fyrir mér prófin ofan á allt annað.
Gangi þér rosalega vel á fimmtudaginn.
Bestu kveðjur
Kristrún

13. desember 2004 kl. 22:08  
Blogger Lilja sagði...

Gott að prófið er búið. Vonandi nærðu að slaka vel á áður en þú ferð að læra fyrir það síðasta. Mikið verður nú gott að komast í jólafrí ;) Gott líka að lundin er léttari og vonandi batnar þér fljótt af flensunni.

13. desember 2004 kl. 22:45  
Blogger gerrit sagði...

Gott að þessu prófi er lokið - þú ert búin að vera súper dugleg í vetur og vonandi uppskerðu vel úr prófunum.

14. desember 2004 kl. 09:15  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ sæta mín og gleðilegt ár.
Ég er eiginlega alveg miður mín hvað ég er farin að virka eins og annar aðili sem við þekkjum... er endalaust að segjast ætla að koma..... :s
guggnaði á að keyra og kom með flugi suður, þannig að ég á ekki von á að koma við... :(
það hlýtur að koma að þessu bráðum... þangað til hafið þið það öll sem allra best og ég heyri í þér bráðlega.
Kveðja Kristrún

5. janúar 2005 kl. 11:23  

Skrifa ummæli

aftur heim

|