16 ágúst 2004

LENGI ÞEGJA SUMIR, EN TALA ÞÓ AFTUR.

Þetta nýja, góða heimatilbúna spakmæli á vel við nú þegar ég hyggst hefja upp mína fitusprengduraust á nýjan leik, eftir langt og gott frí. Ég er ný skriðin úr löngu og ströngu ferðalagi sem innihélt ansi mikið sukk og svínarí, en mikið ógeðslega var gaman. Ég át og drakk og söng og hitta gamla vini og labbaði um fjöll og firnindi með karlinn í eftirdragi hehe. Þegar lýða tók á ferðalagið þá fóru nú að renna á mann tvær grímur og samviskupúkinn skaut upp kollinum og fór að naga mann að innan. Ég steig á vigtina svo í morgun full vonar og ótta og viti menn þrátt fyrir meinlætislifnað og velmegun þá var aðeins eitt lítið kíló sem slæðst hafði á minn búk og ég andaði léttara. Ég komst að því í ferðalaginu að ég þyrfti að drífa í því að ala upp börnin mín og gera þau stór svo ég geti ferðast um landið fótgangandi. Mikið ofsalega er til mikið af fallegum og yndislegum gönguleiðum, sem innihalda fegurð sem eigi sést akandi mönnum. Ég held svo áfram í baráttunni og býst ég við því að þetta muni fjúka af í vetur þar sem ég verð nú í skóla og má þá minna vera að því að fylgjast með vigtinni og minni tími til að éta (ég er ekki ein af þeim sem þarf að læra með nammi poka mér við hlið). En var ekki áætlaður hittingur 18 eða 19? Látið mig endilega vita hvenær og hvar það verður og ég mun mæta!
Lifið heilar.


4 Tjáðu sig:

Blogger Lilja sagði...

Ég er að stinga upp á 19, er upptekin 18 :/

Annars var ég í Borgarnesi um daginn og var að plana að kíkja við hjá þér, en svo hljóp bara tíminn frá okkur :(

16. ágúst 2004 kl. 23:26  
Blogger Hildur sagði...

Frábært að heyra í þér aftur. Ekki slæmt að fá bara eitt kíló á sig í svöna löngu og ströngu fríi. En frábært hjá þér að labba svona mikið, sennilega hefur það haft heilmikið að segja þegar þú fórst á viktina.

17. ágúst 2004 kl. 08:13  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Gaman að lesa loksins eitthvað frá þér... ég vildi að ég hefði verið svona þegar ég var í skóla... en nei... ég þyngdist alveg heilan helling :( Gaman að þú skyldir bara þyngjast um eitt :) Þú verður fljót að ná því af þér :D

kv. eg_get

17. ágúst 2004 kl. 08:47  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Flott hjá þér skvís. Ég er líka búin að vera í fríi í sumar og ég er núna í prófum. Hlakka hrikalega til að halda áfam ótrauð !!!!!!!!! Girl power ;-)

Stórakonan

19. ágúst 2004 kl. 12:45  

Skrifa ummæli

aftur heim

|