01 júlí 2004

Júhú



Yesss var 90,2 í morgun þannig að allt í allt eru farin 13,3 kg síðan 13 apríl, bara nokkuð sátt við það sko. Fékk mér grænt te með sólberjum í apótekinu í gær og hef reynt að halda mig við það enda finnst mér það gott og það er hollara en kaffið. Er reyndar að drepast úr túrverkjum og því bólgin og þrútin en það fylgir bara því að vera kona. Er farin að hlakka til að sjá nían tug á vigtinni og er ég alveg sammála Lilju með það að það er alltaf skemmtilegara að sjá 89,9 en 90 þó svo að það muni nánast engu, svona er maður nú vitlaus hehe. En hafið það gott stelpur sjáumst síðar.

4 Tjáðu sig:

Blogger Lilja sagði...

Jess, þetta verður gaman :D

1. júlí 2004 kl. 18:48  
Blogger Ágústa sagði...

Frábært hjá þér :) Svakalega dugleg.... rock on :)

1. júlí 2004 kl. 21:46  
Blogger gerrit sagði...

Frábær árangur - 13.3 kg síðan í apríl - sama og fór af mér 18. júní sl. 13.3 kg síðan í 18. janúar - þú ert semsagt að fara hraðar niður en ég.. haltu svona áfram

2. júlí 2004 kl. 09:38  
Blogger Hildur sagði...

Frábær árangur hjá þér stelpa. Haltu svona áfram og þú fíkur niður á við, ekki það að þú hafir ekki verið að því hingað til. Glæsilegt alveg hreint.
Hafðu það gott

2. júlí 2004 kl. 13:46  

Skrifa ummæli

aftur heim

|