Mæli mæl
Jæja mældi mig í dag þó svo bjúgurinn sé ekki alveg farinn og þrotinn einnþá til staðar. En hey verð ég þá bara ekki slimmari næst? :Þ
MAGI: 118
RASS: 118
MITTI: 95.5
LÆRI: 65
UPPHANDLEGGUR: 34
VIGT: 94
Þannig að allt í allt eru farnir 6.5 cm og 700 grömm sem er ágætt miðað við að ég sé enn að burðast með of mikin vökva. Plús þá fer líkaminn í svelti þegar maður borðar svona lítið einsog ég hef gert síðustu daga og heldur þá í forðann. Er að skána í munninum og er því farin að borða aðeins meira vona að þetta rjúki af mér þessa vikuna enda ætla ég að reyna að vera svaka dugleg þó svo að litli bróðir minn sé að fara fermast, maður giftir sig bara einu sinni!
Ætla að byrja að fara út í dag enda frábært veður rigning og logn ummm dríf mig út.
Hæ Olla. Takk fyrir heimsóknina á heimasíðuna mína. Gaman að heyra í enn fleirum í átaki. Gangi þér áfram jafn vel, ég á pottþétt eftir að kíkja oft hér inn til að fá stuðning.
Glæsilegt hjá þér.
En sko, eitt sem er að bögga mig ÞVÍÍÍÍLÍKT!!! Hvernig fórstu að því að breyta "comments", sem stendur á eftir hverjum pósti, í "Tjáðu þig" ???? Ég bara er ekki að finna þetta í helvítis templatinu (er sko líka að breyta minni síðu).
Jeeeeej, ég fann þetta loksins :D