09 júní 2004

Jæja jæja



Jæja það rættist heldur betur úr deginum hjá mér. Ég hef verið dugleg í vatninu í dag og passað mig vel og vandlega. Búin að fara í gönguferð og tók sko vel á því þó svo ég væri með barnavagninn með mér. Svo rúði ég eina rollu og það tók sko á púff, held bara að ég hafi svitnað þá öllu vatninu sem ég var búin að drekka. Þannig ég er nokkuð bjartsýnari en ég var í morgun. Var samt að spá þetta með cm mælingarnar hjá mér að hafa þær með tveggja vikna milli bili frekar en viku millibili, þá verð ég líka ánægðari með árangurinn. Annars er alltaf að bætast í hópinn og við orðnar hel. margar en eins og góður maður sagði einhvern tíman more the marrier. Svo velkomnar allar.

2 Tjáðu sig:

Blogger Lilja sagði...

Þýðir ekkert annað en að vera bjartsýn, enda ertu búin að standa þig þvílíkt vel stelpa.

9. júní 2004 kl. 21:15  
Blogger Hildur sagði...

Frábært hjá þér stelpa :o) Ég er rosalega stolt af þér. Ég get líka ímyndað mér að það sé erfitt að rúa rollu (vona að þetta sé rétt skrifað, er svoddan malbiksbarn :o))
Gangi þér áfram svona vel....

10. júní 2004 kl. 15:50  

Skrifa ummæli

aftur heim

|