01 maí 2004

VEISLUR Á VEISLUR OFAN


Jæja er ný komin heim úr fermingaveislu sem gekk bara ótrúlega vel svona megrunalega séð. Það var bæði matur og kaffi (sem sagt kökur). Ég fékk mér mat bara svona eins og venjulega sleppti kartöflunum og svona en fékk mér mikið grænmeti og kjöt og vatn með. Svo í kaffinu þá fékk ég mér bara enga kökur heldur fékk mér bara kaffi. Þetta gekk bara óvenju vel og mig langaði bara alls ekkert í neitt. Mér fannst ég bara fullt dugleg. Ég reyndar svindlaði svoldið í gær en þá bauð tengdó mér í pönnsur og ég fékk mér eina með rjóma vildi það heldur en með sykri. En það er ekki alltaf hægt að vera með járnvilja enda fannst mér ég ekkert vera að svindla heldur var þetta bara mjög meðvitað hjá mér og ég fékk engan móral á eftir.
Ég er farin að upplifa mig mjóa þ.e. að sjálftraustið er að koma aftur og mér finnst ég vera orðin falleg aftur þó svo ég sé ekki búin að léttast það mikið að aðrir sjái það þá sé ég það og finn líka. Mig er farið að hlakka svo til að verða mjó og komast í fötin mín aftur að það er ekkert venjulegt, enda á ég fullt af fallegum fötum sem ég kemst ekki í núna en eftir svona 20 kg þá kemst ég vonandi í eitthvað af þeim. Þarf nú að verða ansi mikið mjórri til að komast í það sem ég var í þegar ég var sextán enda var ég þá 45 kg anorexíusjúklingur og hef ekki hug á því að verða svoleiðis aftur.
Ætla ekki að telja það upp sem ég borðaði núna enda man ég það ekki allt en geri það á morgun.
Sjáumst síðar. Já Lilja takk fyrir peppið og ég mér finnst líka mikið aðhald í því að vita af ykkur stórukonunni, já og fleirum því þá þarf ég að standa mig fyrir fleiri en mig sjálfa.

0 Tjáðu sig:

Skrifa ummæli

aftur heim

|