24 apríl 2004

Jæja góðan daginn.

Nú er ég sest hér niður til að halda matardagbók og þyngdartöludagbók. Ég vona bara að engin finni þetta. Alla vega í dag er Laugardagur og ég er búin að vera í átaki síðan 13. apríl 2004. Ég notast við vigtunarráðgjafa. Síðan 13 apríl hef ég lést um 1500 grömm eða 3 smjörlíkisstykki. og mist 15,5 cm. allt í allt.

Ég er búin að borða morgunmatin og fékk mér ristað brauð með létt kotasælu og sultu. Ég drakk 1 kaffibolla með mjólk og 1 vatnsglas og svo eina appelsínu. Ég stal mér einum súkkulaði bita frá Binna. Er núna að sjóða kjúkling sem ég hyggst hafa í hádeigismatinn.

0 Tjáðu sig:

Skrifa ummæli

aftur heim

|