26 apríl 2004

Frábært!!

Stalst á vigtina áðan þó svo ég eigi ekki að vigta mig fyrr en á morgun og vitiði bara hvað ég er búin að léttast um HEILT kíló. Ekkert smá ánægð, greinilega of fljót á mér í gær að væla og veina. Borðaði morgunmat fékk mér þetta venjulega ristaða brauð (30g) og 1 tsk (5g) af Olivio smjöri og 11% ost (40g) svo einn banana og 2 dl af létt AB mjólk. Drakk tvö glös af vatni og reyni að halda mér vel við það því ég er svo bjúggjörn.
Yndislegt veður í dag þannig að ég dreif mig út eftir að ég var búin að setja stelpuna út í vagn. Fór með Binna að hjóla þ.e. hann hjólaði og ég hljóp á eftir sem var mjög góð hreyfing. Svo röllti ég mér útí fjárhús en það eru góðir 300 metrar þangað. Setti hestana út og gaf rollunum. Svo á bakaleiðinni undraðist ég á hvað ég væri lítið móð og finn að þolið er greinilega að koma aftur. Þarf bara að eignast hjól svo ég geti hjólað hér um sveitina.
Lilja takk kerlega fyrir linkinn og peppið það var mér mikis virði, tileinka þér þetta kíló sem er farið Smile þarf endilega að koma mér upp kommentakerfi bara kann það ekki en ætla að biðja stóra bróðir minn að koma því á fyrir mig.

0 Tjáðu sig:

Skrifa ummæli

aftur heim

|